Birta Sæm
Note to self:Birta Sæmundsdóttir
Aldrei, aldrei ALDREI spila fótbolta 4 dögum fyrir utanlandsferð!! Ég ligg á sjúkrahúsi á Akureyri, deili stofu með tveimur konum. Ég var í aðgerð í morgun, eftir að hafa ökklabrotnað í fótbolta (nákvæmari saga fæst seinna meir)... Í fætinum mínum eru núna 6 skrúfur, ein plata og ég ligg kvalin hérna. Fótbrotna? Alveg sama, shit happens. Missa af Roskilde útaf því? ALLT ANNAÐ MÁL! Svo núna er staðan svona: Engin Roskilde og life sucks! Eins og ég hlakkaði til! Kveðja úr símanum frá Akureyri, -BirtaS-'Tis good to be a fairy...Birta Sæmundsdóttir
Næst þegar eitthvert ykkar mætið mér á balli og ég vil smella mynd af mér og einhverjum öðrum, plís, PLÍS, segið mér að setja ekki stút á varirnar, og segið mér að halda tungunni uppí kjaftinum á mér!Ég kann ekki að setja stút á varirnar, ég þoli ekki þegar ég sé myndir af gelgjum setja stút á varirnar og halda peace merkinu við augun sem horfa upp, en einhverra hluta vegna hef ég vanið mig á það að setja stút á fokking varirnar. Málið er það, að þegar ég geri það þá lít ég út eins og simpansi. Og þegar ég skoða myndirnar af böllum sem ég hef farið á, þá sé ég annað hvort simpansann Birtu eða Gene Simmons með aðeins styttri tungu.
Vinnan löngu komin á fullt. Ég hef verið að leysa af sem flokkstjóri og öll höfum við flokkstjórarnir verið í starfi yfirflokkstjórans sem er eitthvað að trassa vinnuna - ekki alveg nógu sátt með hann sko! Neinei... Yfirflokkstjórinn er Bjartur sem er að fara í sitt seinasta próf á morgun. Núna er hann formlega búinn með fyrsta árið í læknisfræði og ég gæti ekki verið stoltari af stóra bróður mínum! :) Hann kemur heim á föstudaginn, ég verð búin að kæla bjórinn og þá verður sko gaman! Fer svo í fertugsafmæli til mömmu Víkings á laugardaginn, og þá verður kannski líka gaman. Mamma hans er btw einu ári eldri en elsti bróðir minn. That's just fucked up...
Eins og ég sagði. Vinnan komin á fullt. Búin að vera dugleg að mínu mati, veit ekki með mat annarra en ég er sátt með mig. Semsagt, í vinnunni. Er einmitt að vinna með nokkrum sem stunda hreyfingu. Agnes hjólar eldsnemma á morgnanna þegar venjulegt fólk sefur, Kristín fer í ræktina eftir vinnu, þegar venjulegt fólk (ég) slappa af heima og dotta kannski aðeins, og Ármann. Ekki láta mig byrja á Ármanni, þeim sækó strák sem étur eins og hestur og lifir ekki daginn af án þess að fara í ræktina og lyfta. Hann borðar ekki nammi og passar það sem fer inn fyrir hans munn, og það er mikið mind you! Stundum er bara ekkert gaman með honum í kaffi - þegar ég borða mína óhollustu og vill njóta hennar. Snökt!
Allt stórskemmtilegir krakkar og endalaust gaman að stríða þeim og vera strítt á móti. Ekkert einelti er á vinnustaðnum. Allir eru jafnir í skotlínunni og grimm getum við verið. Það hefur aldrei verið leiðinlegur vinnudagur hjá mér í sumar, og ég tel það bara vera nokk gott! Sauðurinn mætir í vinnu á morgun... sjáum til hvernig verður með henni... :p
Núna eru aðeins tvær vikur og nokkrir dagar í Roskildeferð, mína þriðju. Með hverri vikunni verð ég spenntari og ég á það til að taka köst þar sem ég fæ útrás fyrir spenningnum og öskra í vinnunni, tek dans eða eitthvað þannig.
Semsagt, ég hlakka til!! Víkingur á samt eftir að kaupa miðana (ég borgaði flugið), og mesti bömmer eeeeever yrði ef það myndi seljast upp á Roskilde. En miðað við sucky line-upið býst ég ekki við því. Ég bíð á hverjum degi eftir því að Rás 2 hringi og segi að ég hafi unnið miða á hátíðina. Það símtal, kæmi það fyrir 13. júní, myndi sko make my day! Þeir í Popplandi eru bara að geyma mig þar til seinast, ég þori að veðja...
-BirtaS- über spennta stelpan!!
