Birta Sćm
Páll Óskar í gćrBirta Sćmundsdóttir
Það var dansiball í gær. Ég fór og dansaði helling og hitti fullt af fólki sem var líka dansandi. Ég er ekki með öll aðalatriði á hreinu en þetta gerðist:- Ég dansaði.
- Ég hitti eldri bróðir minn og hef aldrei séð hann í svona miklu stuði. Ég dansaði við hann.
- Og ég hitti líka Sigurjón sem var líka í góðu stuði. Dansaði við hann.
- Ég hljóp með Soffíu á barinn niðri til þess að ná að kaupa bjór. Ég veit ekki alveg hvernig þetta gerðist en ég held að ég hafi hlupið á stól og dottið. Ég meiddi mig mikið, en við náðum á barinn.
- Eftir ball nartaði ég í pizzu með Svönu, en hún var svo heppin að hafa fengið eina sneið.
- Ég og Svana lugum því í einhverja stelpu að við værum tvíburar. Að mínu mati vorum við ýkt sannfærandi.
- Ég spjallaði við fullt af fólki eftir ballið.
- Ég þóttist vera að drepast í löppinni og haltraði til þess að vera meira trúverðugri. Ég held að ég hafi gert það til þess að losa okkur við einhvern strák sem vildi halda áfram að djamma og elti okkur.
- Ég var reyndar svo sannfærandi að Víkingur var farinn að hafa áhyggjur af mér og löppinni.
- Þegar við vorum á leiðinni heim bullaði ég víst svo mikið að Víkingur og Auður skildu ekkert í mér. Ég veit ekki meira um þetta.
- Þegar við Víkingur komum heim var læst svo ég fór að ná í aukalykilinn okkar. Ég ætlaði að kasta honum til Víkings svo hann gæti opnað en gerði ekki grein fyrir kröftum mínum (eða áfengi í blóði mínu) svo ég henti lyklinum uppá þak!!
- Þá þurftum við að vekja Bjarma sem var allt annað en sáttur þegar við vorum búin að berja á glugganna hjá honum í nokkurn tíma. En við komumst inn.
Þetta var skemmtilegt kvöld!
-BirtaS-
Ó, hver tíminn flýgur...Birta Sćmundsdóttir
Tíminn líður hratt. Haustönnin fer að verða búin, fyrir mig í það minnsta. Ég á eftir tvö verkefni í íslensku, einn tíma og þá er ég búin þar. Ég á eftir tvö verkefni í sálfræði og einn tíma og ég held að ég sé búin þá í því. Það eina sem þá er eftir er félagsfræðin og ég veit ekki hversu lengi hún verður, eða hvenær ég verð búin. Ég fer allavega ekki í nein lokapróf svo ég ætti að verða laus í byrjun desember. Ljúft það. Svo eftir áramótin fer ég bara í eitt fag og þá er ég bara orðin stúdent. Það verður þokkalegt að vera búin og geta snúið sér að öðru, ég hlakka til þess.Þar sem mamma er í prófum til 19. desember þá verð ég líklegast sett í það að hjálpa sem mest við jólabakstur og allt það dæmi, og ég verð mjög líklegast að æfa mig þar sem ég bakaði muffins um helgina og ég brenndi mestan hlutann. Ég er ekki besti bakarinn skal ég ykkur segja, en ég kann að gera pönnukökur og þær heppnast nær alltaf hjá mér.
En aftur að tímanum sem líður svo hratt. Fyrir akkurat tveimur árum, eða 21. október árið 2005, fór ég á óvissuball á Fáskrúðsfirði. Ég hafði auga á stórum en ungum dreng og klæddi mig eftir því (djók). En sagan endar þannig að það kvöld náði ég drengnum, muhahahahah!! Eftir þetta ball byrjuðum við að rugla saman reitum og stuttu eftir það byrjuðum við saman. Við ákváðum að hafa 21. október sem okkar "afmælisdag" og því erum við búin að vera saman í tvö ár í dag. Sem bara gæti ekki verið betra. En við erum bæði gleymin og áttuðum okkur ekki á því fyrr en í dag, en Víkingur kom þessa helgi - aftur. Og hann kemur vonandi aftur næstu helgi... Hann er semsagt fyrir norðan en ætlar að koma austur eftir áramót því það er nær ómögulegt að vera í sitthvoru lagi. Heh, svona er lífið gott fólk!

-BirtaS-
p.s. Bítlasafnið er klárlega að gera sig. Ég er að uppgvöta svo mörg lög sem ég vissi ekki að Bítlarnir áttu eða tóku. Til dæmis er Twist and Shout heavy kúl hjá þeim, og ég mæli eindregið með laginu Here Comes The Sun af Abbey Road. Það er bara gott!
TilkynningBirta Sćmundsdóttir
Ég vildi bara láta ykkur, kæru lesendur, vita að ég er nú stoltur eigandi ALLS Bítlasafnsins! Ég dreif mig niður í Tónspil í dag eftir að Víkingur var búinn að leggja inná mig smá pening og ég var búin að fullvissa mig um það að visatímabilið hjá Pjetri er breytilegt og nýtt tímabil hafið og skellti mér á safnið! Ég borgaði með tveimur kortum sem er fremur kjánalegt, en ekki kaupir maður safn í nokkrum hlutum. Ég er því orðin mjöööög stoltur eigandi Bítlasafnsins og ég er ekki frá því að þetta er með bestu kaupum EVER!!!

Næstu daga verður ekki hlustað á annað en Los Beatles!!
-BirtaS-

Næstu daga verður ekki hlustað á annað en Los Beatles!!
-BirtaS-
Top 25 Most PlayedBirta Sćmundsdóttir
Ég sit á rúminu mínu með fartölvuna í kjöltu minni. Ég er með heyrnatólin á og hlusta á Top 25 most Played í iTunes. Ég hlusta fáránlega oft á þennan lista. Líklegast af því að þarna eru engin lög sem ég fíla ekki, þó nokkur þeirra séu kannski að verða nokkuð þreytt í eyrum mér. Á þessari stundu er lagið I Saw Her Standing There með Bítlunum, sem er svo ógeðslega hressandi og greinilega eitt af eldri lögum þeirra, það er með þeim takti og stíl, og það er svo geðveikt gott. Ég er búin að hlusta á það 17 sinnum síðan í sumar, en ég heyrði það fyrst af The Rolling Stone listanum yfir 500 bestu lög allra tíma. Listinn er misgóður, mitt markmið var að klára hann í sumarvinnunni, en ég er komin á 460 eða svo, ekki enn búin að klára hann enda sumarvinnan búin. Eins og ég segi, hann er misgóður því smekkur manna er mismunandi. Mörg lög eru þar sem ég hefði aldrei sett á þennan lista, og mörg sem vantar að mínu mati. Aftur á móti er ég sammála mjög mörgum lögum þarna eins og Hallelujah með Jeff Buckley, My Sweet Lord með George Harrison, Like a Rolling Stone með Bob Dylan, og lengi gæti ég talið.-Nokkrum lögum seinna er nú komið að Comedown með hljómsveitinni Bush á Top 25 Most Played listanum mínum-
Listinn minn í iTunes er mjög fjölbreyttur. Í efsta sæti er lagið History með Funeral For a Friend, en ég er komin með pínu leið á því, enda búin að hlusta á það 38 sinnum. Á eftir því er hins vegar lag sem ég er að fíla svo ógeðslega mikið þessa stundina með hljómsveitinni 30 Seconds to Mars. Söngvarinn er leikarinn Jared Leto sem lék m.a. í Requiem For a Dream og Panic Room. Hann deitaði Cameron Diaz. Hann er sætur.
Anyways. Hann er söngvarinn og bróðir hans er trommuleikarinn. Lagið sem er í öðru sæti hjá mér er The Kill, en það vann Kerrang verðlaun fyrir stuttu fyrir besta single. Mjööög gott lag að mínu mati, ég hef spilað það OFT!!!
Kannski ætti ég bara að skella listanum á bloggið, svo þið sjáið sjálf hversu fjölbreyttur hann er. Svona lítur listinn minn út:
- History - Funeral For A Friend
- The Kill - 30 Seconds To Mars
- Counting On Me - KoRn (mér finnst það eitthvað svo catchy, allavega viðlagið).
- Yesterday - The Beatles (klassískt).
- Freshman (Acoustic) - The Verve (Downloadaði fyrir slysni, fílaði það þá og geri enn).
- Unsent - Alanis Morisette (Textinn er eitthvað svo flottur - minnti mig að hluta á mig).
- Mr. Brightside - The Killers (Heyrði það rétt áður en ég fór til Spánar 2004. Bað Bjarma að senda mér og ég hlusta ennþá á það, það er bara svo catchy!)
- Leave Me Alone - Pink (Sagði að listinn væri fjölbreyttur! Þetta lag kemur mér í stuð).
- I Saw Her Standing There - The Beatles
- U + Ur Hand - Pink (... ókei, ég fíla nokkur lög með Pink - er það glæpur?)
- Not Alone - All That Remains
- Comedown - Bush (Nokkuð góð hljómsveit, tjékkið á henni)
- Could You Be Loved - Bob Marley (Dreddafólkið stendur saman, Bob Marley var meistari!)
- Love Hurts - Incubus (Þeir voru fkn góðir á tónleikunum, gott lag).
- Typical - MuteMath (Bjartur sendi mér þetta, hressandi).
- Beyond The Void - Nevolution (íslenskt rokk, þeir eru góðir, sérstaklega þetta lag).
- Anna Molly - Incubus (Skemmtilegt lag).
- We Can Work It Out - The Beatles
- Tears Don't Fall - Bullet For My Valentine (Ókei, ég er farin að fá mikla leið á því).
- Reject Yourself - Killswitch Engage
- This Calling - All That Remains
- Nobody's Wife - Anouk (Vekur upp minningar)
- Was It A Dream? - 30 Seconds To Mars
- Fake Plastic Trees - Radiohead (Mæli svoooooo með þessu lagi).
- Let It Be - The Beatles (önnur klassík).
Ég sagði að listinn væri fjölbreyttur. Ég get hlustað á langflesta tónlist og t.d. Pink. Ég downloadaði reyndar disknum hennar en ég fílaði ekki nemar þrjú lög af honum. Ég get ekki sagt að ég sé þvílíkur fan. Þegar ég fór að pæla í því þá kom mér á óvart hversu mikið af rokki er þarna, en ég hélt að ég hlustaði ekki það oft á metal. Bítlarnir eiga flest lög þarna, 4, enda myndi ég segja að þetta sé mín allra uppáhalds hljómsveit. Já, sumir segja að ég sé svo sannarlega dóttir pabba míns. Þar liggur enginn vafi á.
Bítlarnir eiga einmitt flest lög á Rolling Stone listanum, eða um 23 af 500 lögum, sem er nokkuð gott. Ég ætlaði að byrja að safna Bítladiskunum og er búin að kaupa Rubber Soul og Revolver. Í dag ætlaði ég að nýta 20% afsláttinn sem er hjá Pjétri í tilefni af 20 ára afmæli búðarinnar hans og ætlaði að kaupa Abbey Road og þegar Pjetur var að ná í diskinn sagði hann, greinilega búinn að fylgjast með því að ég væri bara að kaupa Bítladiska þessa daganna: "Væri ekki bara auðveldara að kaupa þetta?" og benti mér á Bítlapakka, með ÖLLUM diskunum sem gefnir hafa verið út!! Ég varð BILUÐ! Hann hefði ekki átt að sýna mér þetta, ég hef ekki getað hætt að hugsa um hversu mikið mig langar í þennan pakka. Ég hætti við að kaupa Abbey Road til þess að hugsa mig um. Ég horfði á þetta girndaraugum og það hlakkaði í mér. Ég sagði mömmu og pabba og bauðst til þess að selja pabba þá 2 diska sem ég var búin að fá á litlar 3000.- krónur. Ég talaði við Víking. Sem ætlar að gefa mér hluta af pakkanum í afmælisgjöf, en á 20% afslætti kostar hann 21.900.- kr.
Ég verð búin að fá hann fyrir helgi, þökk sé Víkingi - og VISA!

-BirtaS-
Smá update á mér.Birta Sćmundsdóttir
Jæja. Mig langar að blogga smá, en bara um mitt venjulega líf og það sem er búið að ganga á núna. Ég er komin með leið á því í smátíma að blogga um Roskilde, en örvæntið eigi, ég mun klára þessi Roskilde blogg - það er markmið mitt.Áður en ég byrja ætla ég að segja ykkur að ég er orðin forstöðumaður Atom og mér líkar mjög vel við það starf. Algjör snilld að vera með krökkunum!!
EN! Ég varð semsagt tvítug á mánudaginn seinasta, þann 8. október. Ég byrjaði afmælisdaginn á því að hanga í rútu því ég var á Samfés á Vestmannaeyjum með 3 krökkum úr Atom. Við lögðum af stað eftir að hafa etið á Selfossi, (EKKI Subway af því að fkn brauðin voru búin, heldur á KFC sem var samt fínt), klukkan 21:00 til Norðfjarðar, og reyndar allrar Fjarðabyggðar því við vorum öll saman í rútu. Við vorum semsagt komin kl 06:00 á afmælisdaginn minn hingað heim. Ég var farin að sofa hálf 7 og vaknaði aðeins klukkan 10 því þetta var fínn dagur til þess að skipta um gler í glugganum upp í stofu. Hávaðinn var gífurlegur en einhvern veginn náði ég að sofna aftur (enda náði ég að sofa á meðan verið var að bora í gegnum vegg hérna í denn) og vaknaði rétt eftir hádegi. Dagurinn var fínn. Ég var að mestu leyti að slæpast og bakaði eina skúffuköku sem ég mætti með í Atom því ég var búin að setja á afmælisboð. Maturinn hjá okkur var pínu seinn af sökum glerleysis og kulda í stofunni, en ég fékk góðan afmæliskjúkling og fór svo galvösk niðrí Atom þar sem ég fékk svona SURPRISE af krökkunum (sem ég bjóst pínu við, Kata er þannig týpa, en hún opnaði Atom). Það komu MIKLU fleiri með köku heldur en ég bjóst við, ég fékk svona 6-7 afmæliskökur og afmælissöng, jafnvel afmæliskórónu eins og í leikskólanum í denn. Ég nýtti rétt minn sem ég öðlaðist deginum eftir og það er nokkuð nice að vera orðin tvítug, þó mér líði ekki eins fyrir utan það að ég get sagst vera tvítug og verið að segja satt, ekki þurfa að segja eftir á: Eða að verða það...
Þessa helgina kom Víkingur sem er í vetrafríi eins og margir aðrir sem ákváðu að kíkja líka í fjörðinn fagra og ég held að málið sé að kíkja á barinn og mingla við fólkið. Svona þar sem ég get verslað mér að drekka og Víkingur má virkilega fara á barinn...
Jú, ég held að þetta verði bara fínt héreftir :)
-BirtaS-
