Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Svarti Listinn

Teljari

Gagnasafn

Orkulind okkar systkina (Bjarts og Birtu)Birta Sæmundsdóttir

Ég sit hér í herberginu hans Bjarts á meðan hann er að þrífa gardínurnar sínar. Djöfull væri mikið skemmtilegra ef hann væri að þrífa gardínurnar mínar, en þeir eru þegar orðnar hreinar. Bjartur hefði hvort sem er aldrei tekið það í mál að þrífa herbergið mitt, ekki nema gegn mjög háu gjaldi.

Annars erum við bara að spjalla yfir bjór. Um ekkert, svo við erum bara að drekka bjór. Mmmm...

Svo ég er komin heim í hinn glæsta Neskauptað. Ég og Víkingur fórum austur laugardagsnóttina fyrir Júróvisjon svo við gætum a) farið með einn skammt af drasli og b) skemmt okkur og dottið í það. B var aðallega ástæðan. Fórum svo heim á mánudeginum (því sumir voru of þunnir til þess að keyra á sunnudeginum), tókum 1 stykki próf á miðvikudeginum, tókum til og brunuðum heim. Og hér hef ég verið síðan þá, tekið almennilega til í herberginu og breytti aðeins til. Ég mun þurrka rykið af á morgun þar sem gestir eru að koma á morgun, seinni partinn. Á dagskránni er ferming yngsta bróður míns og þar af leiðandi síðasta fermingin sem foreldrar mínir munu halda, nema eitthvað virkilega óvænt komi uppá (mamma verður ólétt eða hún mun þurfa að ala upp eitthvað af barnabörnum sínum vegna eitulyfjarfíknar barns síns). Eins og ég segi. Eitthvað mjöööög óvænt!
Svo við þurfum að vera hrein og gera okkar besta til þess að vera sæt og hjálpa til hér heima við. Ég er búin að þrífa hárið á mér, ain't gonna do that again fyrir fermingu en ég ætla að vexa það á morgun, ef dagskrá mín stenst.

Ég hef ekki orku í að bulla meira, sem þýðir að orkulind mín sé búin, það er bjórinn. Þá er tvennt í stöðunni: a) að ná í bjór eða b) láta Bjart drullast á fætur að ná í bjór handa mér. Ég á það inni hjá honum.

Nú, ef bjórinn er búinn, þá er ég í vondum málum og mun ekki sjást á næstunni.

-BirtaS-

OHHHHHHHHHH!!!!Birta Sæmundsdóttir

Hæ Norðfirðingar sem lesið þetta (og allir sem ekki eru frá Norðfirði).

Núna eru aðeins 6 dagar í heimferð okkar og þið getið ekki ímyndað ykkur hversu mikið ég hlakka til. Ég er svo að deyja úr óþolinmæði og ég get ekki lýst því fyrir ykkur hversu mikið ég HATA það að helvítis skólinn VMA sé viku á eftir í prófunum. Það mætti halda að fólkið taki ekki tillit til þess að margt gott er um að vera á laugardaginn næsta og hið  gífurlegasta djamm. Og ég er svooooo pirruð!!! (meira að segja svo pirruð að ég nota kall til þess að útskýra) Öskrandi!!!

Ég öfunda þá sem verða heima yfir helgina...!!

Ég er farin að gráta...

-BirtaS-

AuglýsingarBirta Sæmundsdóttir

Auglýsingar eru yfirleitt mjög pirrandi. Sér í lagi þegar maður er að horfa á Heroes og eitthvað spennandi er að gerast og Skjár1 klippir á helvítis auglýsingar!! Jæja, það gefur manni tíma til þess að skreppa á klósettið ef þess þarf, ná í eitthvað að drekka og poppa ef maður er fljótur. Þær eru máske hentugar þegar maður pælir í því, en overall þá eyðileggur það pínu stemninguna í þættinum.

Það að geta búið til áhrifamiklar auglýsingar er list. Auglýsingar sem maður tekur eftir, hugsar um og finnst virkilega góðar. Þær festast í huganum og láta mann hugsa. Og þá er ég ekki að tala um það að hugsa um uppþvottalög allan daginn, heldur eitthvað sem skiptir máli. Eins og auglýsingarnar sem Umferðamiðstöðin hefur gert. Með rólegum og góðum lögum eins og Vísur Vatnsenda-Rósu, Somewhere Over the Rainbow o.fl. Ótrúlega góðar auglýsingar, mjög vandaðar og fá mann til þess að hugsa.

Ég var að hekla á mér hárið um daginn og heyrði í Sigur Rós í sjónvarpinu. Svo ég horfði. Og þetta var auglýsing. Stelpa, mjög falleg venjuleg stelpa, horfði í spegil, klípandi í sjálfa sig og grátandi. Svo er súmmað frá og þá var þetta spegilmynd stelpu með anorexíu eða átröskunarvandamál að stríða. Þetta var auglýsing frá Forma, sem er samfélag gegn átröskun. Þessi auglýsing er gífurlega áhrifarík og vel gerð og ef þið hafið ekki séð hana getið þið farið á síðu Forma hérna og séð hana.

Annað sem getur haft áhrif á mann eru lög. Ég man ekki svo mörg í augnablikinu en vona að þið getið nefnt einhver. Það sem ég man eftir núna er auðvitað Imagine með John Lennon og Dear Mr. President með Pink. Þið getið séð það á Youtube. Ég er ekki Pink fan sumsé, en mér finnst hún án efa svalasta poppstjarnan í dag. Hún syngur um skemmtilega hluti sem skipta kannski stundum máli, eins og samfélagið í dag (Stupid Girls), forsetann (áðurnefnt lag) o.fl.

Hvaða auglýsingar og lög hafa haft áhrif á ykkur?

-BirtaS-

The Fun Starts Here!Birta Sæmundsdóttir

Jæja. Dreddasagan liðin. En ef þið viljið heyra hana aftur spyrjið bara. Ég mun segja hana aftur og aftur.

Núna ætla ég bara að setja hingað inn nokkrar línur. Ég ætla að fara að sofa núna, hefði kannski átt að gera það mikið fyrr þar sem ég þarf að vakna eftir svona 4 tíma. Ég þarf að vera mætt uppí skóla klukkan korter í 5 til þess að skreyta vagna sem við förum svo í til kennaranna og vekjum þá. Dimmiteringin mikla er semsagt á morgun. Ég er komin með búninginn, búin að teikna hjartað á (ég er Sunshine Bear), búin að kaupa áfengi (takk Stefán), búin að blanda blönduna (takk Siggi, fyrir uppskriftina) og þá er bara að fara að sofa. Sem ég ætla að gera núna. Ég mun taka myndir á morgun og segja ykkur svo frá dimmiteringunni þegar ég hef jafnað mig á þynnkunni.


Sunshine Bear

-BirtaS-

Ég á Öðrum Stöðum

Profile er á íslensku: mynd, mat, uppsetning o.fl.

Cartoons

Afþreying

Tónlist